Fréttir

26.5.2009

Útiræktun á erfðabreyttu byggi

Afritað af vef umhverfisstofnunar:

Varðandi málsmeðferð leyfisveitinga um notkun og sleppingar erfðabreyttra lífvera er vísað til laga nr.18/1996 um erfðabreyttar lífverur og rgl. nr. 493/1997 um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera. Lögbundnir umsagnaraðilar varðandi leyfi til útiræktunar erfðabreyttra lífvera eru Náttúrufræðistofnun Íslands og Ráðgjafarnefnd um erfðabreyttar lífverur.

Umhverfisstofnun hefur haft til meðferðar umsókn fyrirtækisins ORF Líftækni hf. varðandi leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Umhverfisstofnun vill gefa almenningi og hagsmunaaðilum tækifæri til að kynna sér tilgreind áform um útiræktun og að neðan eru birt helstu gögn er verða lögð til grundvallar við ákvörðun um leyfisveitingu að hálfu Umhverfisstofnunar.

Einnig er boðað til opins fundar í Frægarði, fundarsal Landgræðslu Ríkisins í Gunnarsholti, þriðjudaginn þann 26. maí n.k. og hefst fundurinn kl. 13:30. Á fundinum mun fulltrúi stofnunarinnar fara yfir helstu mál er varða forsendur slíkra leyfisveitinga en á fundinum mun fulltrúi ORF Líftækni kynna starfsemi fyrirtækisins auk þess sem fulltrúar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Ráðgjafarnefndar um erfðabreyttar lífverur munu kynna framkomnar umsagnir um fyrirhuguð áform fyrirtækisins um útiræktun. Áhugasamir aðilar eru hvattir til að kynna sér gögn sem fylgja að neðan en vert er að geta þess að vegna viðskiptahagsmunna umsækjanda er strikað yfir trúnaðarupplýsingar í umræddum gögnum. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. maí n.k. og skulu þær berast skriflega til Umhverfisstofnunar Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Útdráttur úr umsókn ORF Líftækni

Fylgiskjal vegna umsóknar: Ný tækni við byggkynbætur

Umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands

Umsögn Ráðgjafarnefndar um erfðabreyttar lífverur ásamt sérálitum

--------------------------


Hér er undirskriftasöfnun af þessu tilefni: http://www.petitiononline.com/GMOIS1/petition.html

Skrifað 26.5.2009 kl. 19:55 af Einari

Bein slóð á færslu

26.5.2009

Controlling our food

Skrifað 26.5.2009 kl. 19:13 af Einari

Bein slóð á færslu

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 11525
Samtals gestir: 3482
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:20:04